Kizuland

Jón er kominn heim!!!
Gunni klikkaði ekki á að taka skröltið úr bílnum, þannig að ég brunaði í 101 Reykjavík á þriðjudaginn, beibí!!! Ú-jé, bara sátt við það. Gott að hitta eiginmanninn eftir þennan hræðilega erfiða aðskilnað ;)  Hann gerði sér lítið fyrir og hætti tveim dögum fyrr í vinnunni til að hanga með mér. Við átum á kaffihúsum og þvældumst um bæinn. Fórum svo í Sjávarkjallarann á fimmtudagskvöldið að borða ævintýrlega góðan mat og njóta ævintýralega góðrar þjónustu. Mæli hiklaust með þessum stað. Á leiðinni heim ,í rómantískri göngu yfir Austurvöll fékk ég kast úr hlátri þegar Zato steig ofan á stærðarinnar ís í brauði í mirkrinu! Kless! OOOOOOJJJJJJ!!!!  GHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHA.... úff, það er erfitt að fá hláturskast með svona stóra bumbu... sei,sei.

Ísold flaug svo í bæinn á föstudaginn og fór til tanna, hún er laus við góminn og þarf ekki að mæta aftur í tékk fyrr en í ág. 2006. Líklega þarf hún að fara í tannréttingar þegar stellið verður allt komið. Buðum henni í bíó, sáum Madagasgar. Tókum dinnerinn með heim af Nings og Dominos.

Var að spá í að splæsa i sjónvarp, en tímdi því svo ekki og ákvað að tíma mínum væri hvort sem er betur varið í annað en sjónvarpsgláp. Zato fékk sér PSP, það er víst bara mest kúl í heimi þessa dagana, en hvað veit ég. Þetta er amk afskaplega falleg lítil græja.

Já, og Jón er líka kominn heim. Við bara bíðum róleg eftir Jöggu.

Leiðist.
Dæturnar farnar, Zato ekki kominn og húsið liktar ekki einu sinni eins og  mitt heimili. Hvernig fæ ég mína likt í húsið? Pissa í hornin kanski? Held ég ætti nú líka að þrífa hamstrabúriiiiin, er með 3 soleis undir 4 dverghamstra.... leðindakvikindi. Spurning um að láta hundinn þrífa þetta? Það er ekki víst að þá þyrfti að gera það neitt aftur.

Búin að afreka eikkað smotterí í dag, sækja um húsaleigubætur, athuga aðeins tryggingamálin sem eru btw bara í tómu bulli.... já og spjalla við Gunnar Pálma sem lofar að lappa upp á bílinn í kvöld svo að ég geti nú kanski rúntað í bæinn á morgun. Ég bara verð að komast í 101 á morgun, er ekki að meika þetta kynsvelti mikið  lengur.

Litli frumburðurinn er víst orðinn 10!!!
Dæturnar komu á föstudaginn, ég fór á móti Mannsa afa og Kollu ömmu langleiðina á Kongó að sækja þær. Íold á afmæli á morgun, 28. ágúst þannig að við ákváðum að slá upp smá veislu í dag. Það er fámennt og gott í partíinu, mættar eru Guðlaug, Perla, Tinna og auðvitað Hóffý (hún er nú á við öll hin í látunum) og Róbert er eini gaurinn. Við ákváðum að taka extra mikið tillit til hans og er þvi aðeins boðið upp á sikurlauar, gerlausar og hveitislausar veitingar. Tókst nú bara ótrúlega vel. María og Lúcía beiluðu, eru að hafa það næs í sveitinni að dorga og eikkað. Svo erum við búnar að bjóða Hóffý ömmu, Jóni afa, Stínu (aldrei að vita nema vinurinn mæti líka... þykir það nú samt ólíklegt) og Ottó í kjúlla í kvöld.

Ísold var auðvitað mjööööög ánægð með flautuna sem Zato reddaði og sendi með hraði í afmælisgjöf, auk þess er hún búin að fá bækur, sokka, litlar kók í gleri, skothylki (til að safna í allskyns dóti og svo á víst að grafa þennan fjársjóð í garðinum), ljósaseríu, vetlinga ofl...

Farin að fylgjast með ormunum.

luv

Enn eitt tepokabloggið, extra þunnt.
Sit ein heima, hlustá Bubba og ég ferðast aftur í tímann. Engin fortíðarþrá samt, merkilegt nokk. Hvern langar að upplifa unglingsárin aftur? Mín voru amk ekki svo merkileg að ég vilji fá þau aftur en heldur ekki svo ómerkileg að ég vilji fá tækifæri til að lifa þau öðruvísi.

Asnalegt að vera ein heima... við Ylfa erum ekki sérlega góðar í að vera bara tvær, en samt skárra að vera ein tvær saman... eða þannig. Stína sys kom í heimsókn seinnipartinn, en ég nennti ekki að hleipa henni inn. En svo hringdi ég í hana og bað hana fallega að koma aftur og þá hleipti ég henni inn og hún sat að þvaðra við mig í 2 tíma held ég.

Kvöldmaturinn minn var beikonborgari úr Hafnarbúðinni, bragðaðist eins og tólg þannig að ég gleipti hann í mig án þess að snerta hann mikið með tungunni til að forðast bragðið. Veit ekki hvað ég er að sækja svona mikið í kjöt, mér finnst það bara vont.

Farin að glápá eikkað DVD

luv

Pizzupartý
Ísold og Hóffý buðu Róbert í pizzumat í kvöld. Þau eru búin að gáma tvær 12" og stóran af brauðstöngum, duglegir krakkar. Litlu englarnir mínir flögra í föðurhúsin á morgun en koma sem betur fer mjög fljótlega aftur í helgarferð hingað.

Ég sakna Zato alveg hræðilega, vantar svo að láta hann taka við öllu sem er svo erfitt hjá mér þessa dagana... hvað svo sem það nú er. Hann fór á Sonic Youth (sennilega ekki skrifað svona,ha?) tónleikana á Nasa í gær og skemmti sér alveg alveg alveg vel.

Fyrir þá sem ekkert vita um bandið þá hefur Sonic Youth starfað í rúmlega 20 ár og hefur allan þann tíma verið ein áhrifamesta hljómsveit rokksins og þó víðar væri leitað. Meðal hljómsveita og listamanna sem sótt hafa í brunn Sonic Youth eru Nirvana, Pearl Jam, Pavement, Neil Young, My Bloody Valentine, Pixies og Blonde Redhead svo fáar séu nefndar. Þá vitiði það.

Afmælisbarn dagsins
Kalli Afi á Smyrlabjörgum á afmæli í dag. Hann er bara nokkuð hress elsku karlinn, tannlaus og heldur grannur, loksins kominn með örfá grá hár í svarta lubbann... enda 86 ára í dag... held ég.

Fallega ólétta konan tjáir sig.
Ef ég var búin að minnast eikkað á áfengislöngun, þá getiði gleymt því. Ég man núna hvernig er að vera ég í þynnku. Ekki ósvipað og síðustu mánuðir hafa verið, ógleði, uppköst, ógleði og hausverkur... og skefilegur þorsti. Var með gubbuna í hálsinum í allt gærkvöld, náði að kyngja fyrstu gusunni og komast að postulíninu í tæka tíð fyrir þá næstu. Er búin að vera með gubbuna í hálsinum í allan dag. Hef nú eiginlega ekki þolinmæði fyrir meira gubbuvesen.... það er bara alls ekki gott fyrir sálartetrið. Að liggja ljót og gubbandi á klósettgólfinu með tárin í augunum í einn þynnkudag, þolanlegt.... en meira eða minna í nokkra mánuði, óásættanlegt. Það er rétt, ég er að brjálast. Mér finnst ömurlegt að vera ólétt.

Bara eikkað.
Jæja þá er ég að verða búinn að koma mér fyrir hér í sveitinni. Vantar reyndar húsgögn í plássið, en það er samt mesta furða hvað hefur komist fyrir á Ránargötunni. Mig vantar eiginlega bara bókahillur eða eikkað slíkt í stofuna og svefnsófa í herbergið niðri fyrir alla næturgestina sem ég ætla að hafa hjá mér.

Zato kemur heim um mánaðarmótin :D   Það verður nú allt annað líf, maður lifandi.Þetta er einmitt fyrsta færslan rituð á nýju fínu fartölvuna sem hann gaf mér. Með nýju fínu þráðlausu nettengingunni sem ég fékk lika. Ekkert smá flott!!!!

Ísold og Hóffý eru hér fram á föstudag en þá fara þær austur og svo er skólasetning bara á máudaginn. Alltof snemma.

Litli bumbubúinn dafnar vel og í þeirri deild gengur bara allt samkvæmt bókinni. Reyndar er smá kviðslit að angra mig.... en það lagast.

Hahahaha.... mig dreymdi að ég fór á hestbak alveg vel í glasi (en það hef ég reyndar aldrei gert) ólétt líka (aldrei farið á hestbak ólétt og aldrei verið vel í glasi ólétt heldur). Hesturinn var hvítur og rosalega stór (ekki íslenskur, liktist meira arabískum fola nema sterklegri). Stína sys var þarna og einhver sem átti hestinn, það er einhver sem ég þekki en man ekki lengur hver það var. Þeim fannst þetta nú ekkert rosalega góð hugmynd... en ég reyndi að sannfæra þau um að þetta væri eina skiptið sem ég gerði þetta... að það væri nú allt í lagi að gera þetta svona einusinni á meðgöngunni.

Mín túlkun: Mig langar geðveikt á hestbak og vá, hvað það væri gaman að komast á eitt gott og skemmtilegt fyllerí!!!

Eiginlega flutt
Man bara ekkert hvað ég ritaði hér merkilegt síðast, enda ár og aldir síðan. En við erum sem sagt flutt inn í kofann í sveitinni. Aumingja Zato verður þó að dúsa stelpulaus í rvk um sinn, en það verður bara þeim mun meira fjör þegar hann kemur. Ég kom reyndar frá höfuðborginni í dag ásamt öllum hinum stelpunum í familien eftir nokkurra daga skringilega dvöl þar sem endaði með því að ég fékk nýjan bíl (árg 1999) og fór á honum heim. Já, eins og sagt var hér í denn; skrítnir hlutir gerast með afbrigðum :)

Ég afrekaði það ein og óstudd hér rétt áðan að tengja lappann við veraldarvefinn, juhúúú! Hehh, en ég get ekki komið lappanum í samband við rafmagn!!! Frekar aulalegt, en ég bara kem ekki klónni í innstúnguna! Það er bara ekki í lagi með þessa kló.... hlýtur að vera. En nú fer tölvuskrattinn sem sagt að lognast út af hvað úr hverju þar sem batteríið er ónýtt.... Það er frekar glatað að vera fastur við vegginn líka, verð að fá þráðlausa tengingu, ekki spurning.

Það gengur frekar hægt að koma einhverri heimilismynd á kofann, við eigum slatta af dóti en ég bara veit ekki hvar í andsk. við höfum verið með þetta drasl því það er ekki til neitt undir þetta dót eins og td, hillur eða skápar. Spurning um að troða bókunum bara líka í eldhússkápana, þar er fullt af plássi. Druslulegu lökin sem hanga fyrir stofugluggunum setja skemmtilagan gettósvip á pleisið, veit ekki hvort að fínu frúrnar hér í kring eru alveg að fíla þetta. Dæturnar eru nú samt báðar búnar að fá rúm og eikkað smotterí í viðbót. Þær sættu sig nú ekki lengi við galtóm herbergin.

Jæja ljósin mín, farin að kíkja á eins og eitt dvd og slaka mér aðeins fyrir svefninn.... hvort er erfiðara að sofa við hrotur eða ekki hrotur?

Eigið friðsæla nótt.

Allt að gerast
Við erum næstum búin að pakka niður ruslinu okkar, og nánast allt sem búið var að pakka fór heim í sveitina með Jóni Fuglabónda Föður mínum og Múttu í dag. Bara smotteríis drasl eftir og svo ÖLL húsgögnin okkar sem er nú ekkert smáræði... og svona græjudót eins og þvottavélin. Þannig að næstu daga búum við með ekkert leirtau og engin hnífapör og ekkert. Bara rúm og ísskáp. Næs :D

Vona bara að salan gangi snuðrulaust í gegn og við getum bara farið með sól í hjarta á nýjan (gamlan og þreyttan) stað. Við erum búin að fá leigt hús ( jább, heilt hús sem ekki lekur eða neitt) á Höfn og ætlum að halda til þar amk næsta árið og sjá svo til. Stína fékk lykilinn í dag, þannig að draslið bíður bara eftir okkur í húsinu þegar við mætum. Ég bað nú mömmu að taka upp úr kössunum og ganga frá í skápana og sona en hún hélt að ég væri að grínast. Hún hefði nú bara gott af því að gera þetta, manneskjan hefur ekki staðið í búferla fluttningum síðan 1973.

Pakka niður
Jæja, kizuland er að drukkna í spammi eins og vanalega.... skemmtilegt.

Við vorum fyrir austan um 17. júní helgina og skoðuðum nokkur hús. Fengum reyndar ekki að skoða húsið sem við vorum spenntust fyrir... leigendurnir í húsinu bara treystu sér ekki til að sýna það núna... og seljandinn lét það nú bara gott heita. Miðað við okkar reynslu af húsnæðismarkaðsmálum á Höfn er bara ekkert skrítið að húsin seljist ekki. Við buðum í eitt um daginn, en eigandinn bara hætti við að selja, kofinn búinn að vera til sölu í 3 ár. Maður fer nú að efast um að maður sé velkominn.

Zato er hinsvegar kominn með vinnu fyrir austan í haust. Hann verður söng og gítar kennari. Bara alveg frábært. Þannig að við erum amk velkomin í vinnu. Mér var strax boðin vinnuaðstaða.

Við erum að fara að pakka niður hér á Ránargötunni, afhendum íbúðina 1. júlí. Líklega fer draslið bara í gám en við fáum athvarf í kjallaranum hjá tengdó um stund. Það er ef ekkert klikkar, eins og td að fá afsalið okkar loksins í hendurnar svo hægt verði að þinglýsa því um leið og skiptasamningurinn liggur fyrir og klára þá allt dæmið í einu.

Hitti nágranna minn, Pál Pálsson, frammi á stigapalli í fyrradag og sagði karluglunni að við værum búin að selja og værum að fara 1. júlí. Það reyndist einnig vera síðasti vinnudagurinn hans á einhverjum vernduðum vinnustað og hann sagði mér rosa ánægður að hann ætlaði að verða bílstjóri eftir það.... right! Maðurinn hefur ekki heila brú í hausnum og eflaust ekki bílpróf.

En ég hlakka til að kveðja þessa annars ágætu íbúð og vona að við þessar breytingar snúist allt á aðeins betri veg og allt sem við tökum okkur fyrir hendur verði hér eftir ekki endalaus barátta og erfiði heldur líka stundum smooth og þægilegt. Þó svo að við séum á götunni í smá tíma.

Ég er með kvef, hausverk, hor og hálsbólgu. Það er bara ekki sanngjarnt.

Yngsta dóttirin í bumbunni er alltaf jafn sprellandi hress, bíð eftir því að hún stækki aðeins meira, þá þrengist aðeins að henni svo að hún hefur ekki svigrúm til að sparka og kíla eins hraustlega. En á móti þá verður hún auðvitað þyngri þannig að þetta verður kanski bara alveg jafn þreytandi.... Bara seinni hálfleikur eftir. Jeij!  Ég var eiginlega ekki að reikna með að vara eikkað pirruð á meðgöngunni þó þetta hafi nú aldrei verið það skemmtilegasta sem ég geri.... en vá hvað það er stuttur þráðurinn.

Aumingja Zato minn. Vona bara að hann þoli mig amk 4 mánuði í viðbót.

Í dag fékk ég pening! Jeij!
Ég bauð lille bro í mat í gær og gaf honum vonda súpu að borða. Ég sem vandaði mig rosa mikið að búa til súpu en hún reyndist bara því miður vera ógeð... en hummusið, brauðið, salatið og bjórinn stóðu alveg fyrir sínu. Lille kom líka með ís í eftirrétt sem var rosa gott.

Góður maður hjá VR er búinn að pína Hænir til að borga það sem ég átti inni hjá þeim, mig munaði einmitt mikið um hundraðþúsarann akkúrat núna. Í dag er ég bjartsýnni en í gær og þá var ég samt bjartsýnni en í fyrradag! Þannig að einhvernveginn reddast þetta alltaf. Skrítið.

Ég er ekki að passa Guðna litla í dag, Pabbi  hans er heima. Ég ætla nú samt aðeins að kíkja í heimsókn til þeirra feðga, svona til að litli kúturinn venjist mér aðeins. Svo fer ég að sækja litla snúðinn minn til dagmömmunnar kl 4, svo förum við Snúður að sækja Zato í vinnuna, ég skutla þeim heim og dríf mig í vinnuna. Jább, ég vinn alltaf smá, ekki mikið samt. Tek einn og einn skrokk í gegn.

luv Kiza

Lausa loftið
Jú, góðan og blessaðan daginn. Er að hugsa um að nota hann til að þrífa bílinn (þetta litla sem eftir er heilt af Micrunni hennar Stínu sys) því mér er nú bara sjálfri farið að ofbjóða hundasnoðið og drullan þarna inni. Annars er það nýjast að frétta af bílnum að við píndum greiið austur undir Eyjafjöllin að Klifi um síðustu helgi og hann missti pústið við það. Viðgerðin hans Guðna frænda var nú líka búin að endast von og viti en ég hef hinsvegar ekkert efni á nýju pústi núna, atvinnulaus auminginn og engar fæ ég bæturnar ... hjólastólnum í frekar en Siggi sjómaður.

Við Zato fórum mjög óvænt á Bubbatónleikana í Þjóðleikhúsinu. Fengum gefins miða og í þetta skiptið var Kolli höfðinginn.  Það var auðvitað bara frábært, Bubbi er nú ekkert smá flottur, 49 ára gammlinginn. Hann glotti þegar hann var búinn að flytja Ísbjarnarblús ( ég ætla með kíló af hassi út í náttúruna, fíla grasið þar sem ég hlæ...), sagðist ekki hafa átt von á því þegar hann samdi lagið á sínum tíma, að eiga eftir að syngja það með forsetann úti í sal. :D  Held nú bara að Óli forseti hafi skemt sér rosa vel.

Sumarið verður vonandi gott, ég er alveg í lausu lofti með það, veit ekki betur en ég sé búin að selja ofan af mér íbúðina og flytji út fyrir mánaðarmót. Ætli við verðum ekki bara í útilegum í allt sumar. Fengum amk ekki húsið sem við buðum í á Höfn. Eigendurnir hættu nú bara við að selja. Sumir eru greinilega bara með húsið sitt til sýnis en ekki sölu.... sem er í meira lagi sjúklegt. En skítt með það, við finnum bara annan kofa. Það er nóg til af kofum. Við leggjum meira upp úr fermetrafjölda og plássi en öðrum gæðum.... okkur er sama ef það er fullt af plássi og þakið lekur ekki mjög mikið. Það væri ekki verra ef eldavélin væri í sæmilegu standi. Þannig er nú það. Ekki skrítið að maður ráði sig ekki í vinnu þegar maður veit ekki einusinni hvar maður á heima. Það styttist óðfluga í þunglyndið með þessu ástandi. Fæ reyndar að passa Guðna litla frænda minn 2 daga í viku í júní, það dreifir huganum aðeins á meðan. Vona að þessi litli ljósgeisli fari nú að fá góðan bata. :)

Dæturnar koma ekki fyrr en á mánudaginn, viku seinna en ég hélt. Smá samskiptaörðuleikar hjá Pabbanum. En hann hefur fengið háværa áminningu og lofar að reyna að standa sig betur í soleis málum hér eftir. Við erum að stefna á Höfn 17. júní.... skoða kofa, hvað annað. Erum með augastað á einum ljótum og hálf ónýtum. En við teljum að hann færi okkur mjög vel. Sjáum okkur ekki alveg fyrir okkur í venjulegu, fallegu, heilu húsi. Það er bara ekki okkar stíll. En við erum að leita að garði fyrir hundinn, herbergjum fyrir okkur, Ísold, Hóffý og svo auðvitað Róbert. Hann bætist alltaf við barnahópinn minn ;)  Svo kemur að því að bubmubúinn heimti sitt pláss á heimilinu. Vá hvað þetta er að verða stór hópur, 4 plús 1, plús hundur, plús Róbert. Það eru nú bara 7 stykki þakka þér fyrir.

Kominn tími á að drattast á fætur, druslast í ræktina ef Pálmar vill fá mig, þrífa bílinn og raka svo hundinn sköllóttann.

Langar bara að fara að pakka niður og flytja...

Ormaskoðun.
Við fórum í sónar í morgun og fengum rosa flottar myndir af orminum sem auðvitað lét öllum illum látum á meðan skoðunin fór fram, hætti rétt svo að boxa til að skoða á sér hendurnar. Þetta var alveg magnað! Við vorum skoðuð með glænýju tæki sem Landsinn er að spá í að kaupa og það var svei mér þá hægt að skoða hvert smáatriði á krílinu ;)  Ég get ekki betur séð en að þarna séu til staðar bæði skakka brosið og Smyrlabjargareyrun.

Íbúðin er komin á sölu og tilboðunum rignir inn, ekki þó niður um þakið eins og hver önnur rigning. Eða sko það kemur amk alveg fólk að skoða.

Við erum í huganum flutt í stórt gamalt hús og látum okkur dreyma allskonar vitleysu í kring um það, það er bara gaman.

En ormurinn er semsagt bara alveg eins og hann á að vera, allt í himnalagi. Það var auðvitað mikið gott að fá að heyra það.

Jæja farin að sýna höllina eina ferðina enn.

æ, ég missti mig í kjöt og bras
Jæja, ég fékk netta aðvörun frá eigin líkama eftir að hafa borðað hádegismatinn. Þó svo að akkúrat sá matur hafi verið léttur og hollur og allt það, indverskur grænmetis og baunaréttur á Næstu grösum. Ég sem hef sko ekki borðað kjöt og forðast mæjó og rjóma... tjah... hvað, undanfarin 8 ár? Eikkað þannig. Ákvað allt í einu að það væri rosa góð hugmynd að éta hangikjöt, majó, pepperoni, rjóma, ís og milksheik,  hamborgara, hakk ofl. sem ég hef ekki getað borðað lengi og fékk semsagt að vita með nettu verkjakasti í dag að það færi mér best að sleppa því bara áfram. Nú ætla ég að jórtra graskersfræ og þamba sjeik úr appelsínusafa og sveskjum til að mæta járnþörfinni... hljómar spennandi.

Ég fjárfesti í tveimur síðum jbs hlírabolum til að byrgja ýstruna sem er farin að gægjast út á milli laga í tíma og ótíma. Reykna með að splæsa í buxur við fyrsta tækifæri þar sem STÓRA öryggisnælan sem hefur undanfarið brúað bilið á buxnaklaufinni er orðin of lítil.

Ormurinn minn hamast sem aldrei fyrr, hann gerði tilraun til að hlaupa út af Hrauntónleikunum á Rósenberg í gær, krakkinn hreinlega trylltist á fyrstu tónunum og linnti ekki látum fyrr en ég fór heim að sofa. Ekki víst að ég rogist með hann á tónleika aftur alveg í bráð. Mér finnst þessi læti í maganum á mér frekar fríkí. Get ekki að því gert að það krípar mig pínu að finna einhvern hreifa sig með þvílíkum látum í belgnum á mér... ánægjulegt en samt krípí.

Best að fara að borða jarðaber, best að borða jarðaber fyrir tvo  :o)

luv

kiza