maí 01, 2008

Hún er svo fokking leiðinleg

Esther er sko lang frá því að vera leiðinleg... en sitt sýnist hverjum og hún fékk sterk viðbrögð við þessari færslu. Enda agalegt í augum sumra að einhver taki bara hreinlega afstöðu í trúmálum, hvað þá innan grunnskólans.

Posted by Kiza

apríl 28, 2008

Ljóð eftir Baudelaire

Hundurinn og ilmvatnsglasið
(þýð. Jón Óskar)

Hundurinn minn væni, hundurinn minn góði, blessaður
hvuttinn minn, komdu nú og þefaðu af fyrirtaks ilmvatni sem
ég keypti hjá besta ilmvatnasala borgarinnar.
Hundurinn dillar skottinu, en það higg ég vera muni hlátur
og bros hjá þessum greyjum, kemur og leggur vott trýnið
skringilega á tappalausa flöskuna; en óðara hrekkur hann
hrelldur frá og geltir reiðilega að mér.
-"Svei þér, hundspottið þitt. Ef ég hefði boðið þér skítköggul,
hefðiru þefað af honum með bestu lyst og mikið ef þú hefðir
ekki rifið hann í þig. Óverðugur félagi ert þú mér í lífsins tára-
dal, svipaður lesendunum sem aldrei ætti að bjóða ljúfan angan,
svo þeir umhverfist ekki af bræði, heldur nærfærnislega valinn
óþverra."

Posted by Kiza

hitt og þetta

Ég er hætt að nudda vegna "aldurs" þ.e. vegna nuddaldurs, alveg að drepast í liðunum. Enda búin að nudda í 13 ár ! Jæks. En ég er farin að kenna...eða reyna það, er með stuðningskennslu í FAS. Það er bara gaman... fyrir mig, kanski ekki fyrir nemendurna en það verður bara að hafa það. Fór einmitt út að borða í boði FAS á laugardagsköldið á Humarhöfninni, það var bara kreisí. Góður matur, skemmtilegt og áhugavert fólk,þægilegt umhverfi, þannig að þetta var bara frábært kvöld. Við vorum líka með smá Sushi veislu heima á föstudagskvöldið, enda Elín dekurrófa í heimsókn, það var allgjör snilld... Jón Karl, Röggi og Inga Rún mættu og það var kannski aðeins of mikið borðvín en ekki svo mikið. Við Ylfa kíktum á Víkina á eftir :o) Ylfa fór í dulargervi og komst inn. Hún þóttist vera fíkniefnahundur og fékk að rölta um og hnusa af fólki... miðað við hvað hún var hrifin af öllum þar inni voru allir með dóp á sér !!! Hahaha.... en svo skokkuðum við bara heim að sofa. Enda helgin rétt að byrja. Siggi og Elín tóku upp eitt lag á sunnudaginn, ekkert smá gaman að hlusta á þau systkynin spila saman. Við Saga fórum reyndar út að hoppa, róla, moka og sigla á meðan upptakan stóð yfir en við þvældumst í kringum þau á meðan þau æfðu sig.

Þannig að lífið er frábært og skemmtilegt þegar maður á að vera að lesa fyrir próf.

Posted by Kiza